Distribution
Reglulegur vetrargestur og eru tvær deilitegundir árvissar hér, Larus glaucoides glaucoides frá Grænlandi, sem er miklu algengari, og Larus glaucoides kumlini sem kemur frá Kanada.
Population
Þúsundir fugla sjást hér í vetrarfuglatalningum en örðugt getur verið að greina sundur hvítmáf og bjartmáf á löngu færi. Safnast stundum í þúsundatali, t.d. á Eyrarbakka á loðnuárunum og eins í Kolgrafarfirði meðan síld hafði þar vetursetu fyrir nokkrum árum. Að öðru leyti virðist erfitt að afmarka mikilvæg svæði fyrir þessa tegund.
Shortlist
LC (ekki í hættu)
Ísland | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|
LC | LC | LC |
Forsendur flokkunar
Kynslóðalengd (IUCN): 11,6 ár Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1979-2014
Vetrarfuglavístölur Náttúrufræðistofnunar benda til nokkuð samfelldrar fjölgunar bjartmáfs hér við land frá 1960 og er hann ekki talinn í hættu (LC) (sjá graf).
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2000: Bjartmáfur var ekki í hættu (LC).
Protection
Bjartmáfur er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Priority Site
A4 i: N-Atlantshaf (glaucoides) = 1.950 fuglar/birds (Wetlands International 2016)
B1 i: A4 i
Images
References
Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search[skoðað 26. nóvember 2016].
Author
Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, október 2018
Biota
- Tegund (Species)
- Bjartmáfur (Larus glaucoides)
English Summary
Larus glaucoides is a common winter visitor in Iceland. No IBAs are designated for this species.
Icelandic Red list 2018: Least concern (LC) as in 2000.