Lómur (Gavia stellata)

Distribution

Lómur verpur í N-Ameríku, en einnig á Grænlandi, í Evrópu og Asíu. Hann er farfugl að einhverju leyti og hingað koma líklega vetrar- og jafnvel fargestir frá Grænlandi.

Population

Lómur er allalgengur hér á landi og hefur verið giskað á 1.000−2.000 pör (Umhverfisráðu­neytið 1992). Þekktir eru um 1.300 varpstaðir og enn eru stór landsvæði ókönnuð með tilliti til lómsvarps (Ævar Petersen o.fl. 2013). Sums staðar verpa lómar í miklu nábýli, oft tugir para á litlu svæði (sjá kort). 

Shortlist

LC (ekki í hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
LC LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 9,8 ár Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir): 1985–2014

Lómastofninn er það stór (> 1.000 kynþroska einstaklingar) og verpur dreift að hann flokkast ekki sem válistategund af þeim ástæðum. Stofnþróun er hns vegar ekki nógu vel þekkt hér á landi, sérstaklega í ljósi þess hve langt viðmiðunartímabilið er (29 ár) og kerfisbundin vöktun varpfugla hefur staðið í tiltölulega stuttan tíma eða frá 2006 (Ævar Petersen o.fl. 2013). Vetrarvísitala sýnir mikla aukningu á þessum tíma en jafnframt miklar sveiflur í fjölda fugla sem tengjast væntanlega fiskigöngum (sjá graf). Lómur er því ekki talinn í hættu (LC).

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Lómur var ekki í hættu (LC).

Protection

Lómur er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Priority Site

Fimm varpsvæði hér á landi teljast alþjóðlega mikilvæg fyrir lóm (sjá töflu).

IBA viðmið – IBA criteria:

A4 i: Evrópa (vetrarstofn/winter) = 300 fuglar/birds; 100 pör/pairs (Wetlands International 2016)

B1 i: A4 i

Tables

Lómsvarp á mikilvægum fuglasvæðum á Íslandi – Breeding Gavia stellata in important bird areas in Iceland.

Svæði AreaSvæðisnúmer Area codeÁrstími SeasonFjöldi (pör) Number (pairs)Ár Year% af íslenskum stofni % of Icelandic popul.Alþjóðlegt mikilvægi International importance
Borgarfjörður–Löngufjörur1 FG-V_10 B 150 2016 10,0 A4i, B1i
Breiðafjörður1 FG-V_11 B 100 2016 6,7 A4i, B1i
Arnarvatnsheiði2 VOT-N_1 B 25 2012 1,7  
Skagi2 VOT-N_5 B 30 2012 2,0  
Öxarfjörður3 VOT-N_12 B 120 2009 8,0 A4i, B1i
Melrakkaslétta1,4 FG-N_4 B 110 2016 7,3 A4i, B1i
Úthérað5 VOT-A_3 B 220 2000 14,7 A4i, B1i
Hornafjörður–Kolgríma6 VOT-A_4 B 30 2016 2,0  
Breiðamerkursandur6 VOT-A_5 B 30 2016 2,0  
Suðurlandsundirlendi1 VOT-S_3 B 70 2016 4,7  
Önnur mikilvæg svæði Other important areas   B 80 2016 5,3  
Alls–Total     965   64,3  
1Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn/unpubl. data 2Náttúrufræðistofnun Íslands, gróft mat/rough estimate 3Þorkell L. Þórarinsson o.fl. 2013; Náttúrustofa Norðausturlands, óbirt gögn/unpubl. data 4Guðmundur Örn Benediktsson, pers. uppl./pers. com. 5Guðmundur A. Guðmundsson o.fl. 2001 6Björn Arnarson, pers. uppl./pers. com.

Images

References

Guðmundur A. Guðmundsson, Guðmundur Guðjónsson, Sigurður H. Magnússon, Kristbjörn Egilsson, Halldór Walter Stefánsson og Kristinn Haukur Skarphéðinsson 2001. Kárahnjúkavirkjun: áhrif breytinga á vatnafari Jökulsár á Dal og Lagarfljóts á gróður, fugla og seli. Náttúrufræðistofnun Íslands, NÍ-01005. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.

Umhverfisráðuneytið 1992. Iceland: national report to UNCED. Reykjavík: Umhverfisráðuneytið.

Wetlands International 2016. Waterbird Population Estimates. http://wpe.wetlands.org/search [skoðað 26. nóvember 2016].

Þorkell Lindberg Þórarinsson, Aðalsteinn Örn Snæþórsson, Böðvar Þórisson, Guðmundur A. Guðmundsson, Halldór Walter Stefánsson, Kristinn Haukur Skarphéðinsson og Yann Kolbeinsson 2013. Fuglar á Austursandi við Öxarfjörð. Bliki 32: 59–66.

Ævar Petersen, Guðmundur Ö. Benediktsson og Ib K. Petersen 2013. Monitoring and population changes of Red-throated Divers in Iceland. Erindi flutt á International Loon and Diver Workshop, 21.–22. september 2013, Hanko, Finnlandi.

Author

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, október 2018

Biota

Tegund (Species)
Lómur (Gavia stellata)

English Summary

The Gavia stellata population in Iceland is roughly estimated 1,000‒2,000 pairs. Five breeding areas are designated IBAs for this species and 64% of the population breeds in such areas.

Icelandic Red list 2018: Least concern (LC) as in 2000.