Eyrugla (Asio otus)

Distribution

Eyrugla er mjög útbreiddur varpfugl í Evrópu, Asíu og N-Ameríku og velur sér margvíslegt skóglendi til varps en líka opnara land til veiða. Hún er farfugl í nyrsta hluta heimkynna og hefur verið þekkt sem flækingsfugl hér á landi um langt skeið. Er algengust á haustin og virðist tíðum hafa haft hér vetursetu og raun sést fram á sumar (Birding Iceland 2006, Bliki 1981–, Gunnlaugur Pétursson og Gunnlaugur Þráinsson 1999). Eyruglur hafa orpið hér a.m.k. frá 2003 (Daníel Bergmann 2005) og þá aðallega í trjáræktarreitum á Suðvesturlandi en einnig er grunur um varp á Norðurlandi (Bliki 1981–, Jóhann Óli Hilmarsson 2011–). 

Population

Eyruglur láta ekki mikið á sér bera á varpslóðum og því er mat á stofninum erfiðleikum bundið en væntanlega verpa hér fáeinir tugir para.

Shortlist

VU** (í nokkurri hættu)

ÍslandEvrópuválistiHeimsválisti
VU** LC LC

Forsendur flokkunar

Kynslóðalengd (IUCN): 7,2 ár Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir):

Íslenski eyruglustofninn er enn mjög lítill (líklega <50 kynþroska einstaklingar) og ætti því að teljast í bráðri hættu (CR). Hér er hún færð niður um tvo flokka samkvæmt leiðbeiningum IUCN vegna þess að ekki er hægt að tala um einangraðan stofn sem er að auki <1% Evrópustofns og eins eru miklar líkur á að hún gæti numið land hér að nýju. Hún er því flokkuð sem tegund í nokkurri hættu (VU).

Viðmið IUCN: (D)

D. Stofn mjög lítill eða takmarkaður.

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)

Eldri válistar

Válisti 2000: Eyrugla var ekki á válista.

Protection

Eyrugla er friðuð samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.

Priority Site

IBA viðmið – IBA criteria:

Engin/none

References

Daníel Bergmann 2005. Eyrugla verpur á Íslandi. Bliki 26: 47–50.

Birding Iceland. Little Gulls in Iceland up to and including 2006, https://notendur.hi.is/yannk/status_asiotu.html

Bliki: Tímarit um fugla 1981- . Sjaldgæfir fuglar á Íslandi. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.

Gunnlaugur Pétursson og Gunnlaugur Þráinsson 1999. Sjaldgæfir fuglar á Íslandi fyrir 1981. – Fjölrit Náttúrufræðistofnunar 37. 246 bls.

Jóhann Óli Hilmarsson 2011- . Sjaldgæfir varpfuglar.  Fuglar, nr 8 og áfram.

Author

Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, júní 2018, október 2018

Biota

Tegund (Species)
Eyrugla (Asio otus)

English Summary

Asio otus is a recent and rare breeding bird in Iceland with probably a few dozen pairs breeding annually. No IBAs are designated for this species.

Icelandic Red list 2018: Vulnerable (VU). Not applicable (NA) in 2000.