Distribution
Mjög sjaldgæf á Íslandi, vex aðeins á örfáum stöðum á Austfjörðum og á Vestfjörðum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Móar og kjarrlendi.Description
Meðalhá elfting (20–40 sm) með liðskipta stöngla og liðskiptar, kransstæðar og greindar hliðargreinar.
BlaðStönglarnir sívalir, gáraðir, liðskiptir, með liðskiptum, kransstæðum greinum. Tennt slíður við hvern lið, slíðurtennur brúnar eða rauðbrúnar ofan til. Greinarnar níu til tólf í kransi, hvassferstrendar með grænleitum eða móbrúnum tönnum við hvern lið, greinast oft sjálfar í tvennt eða þrennt við hvern af neðstu liðunum. Ystu greinendar með ógreinda liði, þrístrendir (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningFremur auðþekkt á brúnleitum slíðrum og á greiningunni.
Shortlist
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | NE |
Forsendur flokkunar
Skógelfting flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 7 km2 auk þess sem einungis 3 fundarstaðir eru þekktir.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Skógelfting er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Skógelfting er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Distribution map
Images
Author
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Móar og kjarrlendi.Biota
- Tegund (Species)
- Skógelfting (Equisetum sylvaticum)