Ferlaufungur (Paris quadrifolia)

Distribution

Ferlaufungur er sjaldgæfur en einna algengastur á Suðvesturlandi, Vestfjörðum og Þingeyjarsýslu (Hörður Kristinsson - floraislands.is).

In General

Líffræði

Aldinið er eitrað (Hörður Kristinsson 1998).

Skaðsemi

Aldinið er eitrað (Hörður Kristinsson 1998).

Habitat

Vex helst í skóglendi, hraunsprungum og innan um stórvaxinn gróður í friðuðum hólmum (Hörður Kristinsson 1998).

Description

Meðalhá planta (15–35 sm) með fjórum, stórum, kransstæðum blöðum og myndar svart ber. Blómgast í júlí.

Blað

Af láréttum jarðstöngli vaxa uppréttar hliðargreinar, hver um sig með fjórum, kransstæðum blöðum (Hörður Kristinsson 1998).

Blóm

Eitt blóm á toppi hverrar hliðargreinar. Blómið fjórdeilt. Bikarblöðin lensulaga, oddmjó, græn, 2–3 sm á lengd og 4–5 mm breið. Innri blómhlífarblöðin talsvert styttri, gulgræn og striklaga. Fræflar átta með löngum, gulum frjóhirslum. Frævan dökkfjólublá (Hörður Kristinsson 1998).

Aldin

Berið dökkfjólublátt í fyrstu en verður enn dekkra við þroskun. Eitrað (Hörður Kristinsson 1998).

Greining

Líkist engri annarri íslenskri tegund.

Protection

Ferlaufungur er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda. Hann er þó ekki á válista.

Distribution map

Author

Hörður Kristinsson 2007

Vex helst í skóglendi, hraunsprungum og innan um stórvaxinn gróður í friðuðum hólmum (Hörður Kristinsson 1998).

Biota

Tegund (Species)
Ferlaufungur (Paris quadrifolia)