Description
Undafífill með blaðhvirfingu og einu til þremur stöngulblöðum. Körfur smáar, kafloðnar, blómin gul.
BlaðPlöntur með blaðhvirfingu og oftast einu til þremur stöngulblöðum. Hvirfingblöð kringlótt eða egglaga, geta verið aflöng. Blaðka nokkuð vel afmörkuð frá stilk. Stilkur oft nokkuð langur og mjór. Blöð mjókka nokkuð snöggt niður að stilknum. Oftast smáar eða frekar smáar plöntur og séu þær hávaxnar eru þær fíngerðar. Stutt, gul kirtilhár auðfundin á blaðröndum. Blöð oftast tennt, sérstaklega neðan til, geta verið heilrend. Tennur geta verið nokkuð stórar og hvassar. Blöð stundum rauðleit (Bergþór Jóhannsson 2004).
BlómKörfur smáar eða frekar smáar, kafloðnar af löngum broddhárum. Á reifum er einnig fjöldi stuttra, gulra broddhára. Stílar á þurrkuðum plöntum svartir, stundum mórauðir. Stjarnhár aðeins neðst á körfum. Alloft er aðeins ein karfa á stöngli en þær geta verið tvær til fjórar, stundum jafnvel fleiri (Bergþór Jóhannsson 2004).
AldinFræ með svifhárakransi.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Biota
- Tegund (Species)
- Vinafífill (Hieracium stroemfeltii)