Distribution
Útbreiðsla er illa þekkt.Habitat
Rakir skógar og engi, mýrajaðrar og vatnsbakkar (Lid og Lid 2005).Description
Hávaxin planta (50–150 sm) með dökkgræn, deild blöð og mörg, lítil, ljósbleik blóm í sveipum.
BlaðOftast bæði ofan- og neðanjarðarstönglar. Stöngull oftast með þrjú til níu blaðpör. Bæði stofn- og stöngulblöð hafa eitt endasmáblað sem er nokkuð stærra en hliðarsmáblöðin. Stundum finnast plöntur með ódeild eða fádeild blöð (Lid og Lid 2005).
BlómBlóm í sveipum, hvít eða fölbleik. Krónupípan 4–8 mm djúp (Lid og Lid 2005).
AldinAldin 4–5 mm langt (Lid og Lid 2005).
Shortlist
DD (vantar gögn)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
DD | NE |
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Hagabrúða er á válista í hættuflokknum DD (upplýsingar ófullnægjandi).
Válisti 1996: Hagabrúða er á válista í hættuflokknum DD (upplýsingar ófullnægjandi).
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Rakir skógar og engi, mýrajaðrar og vatnsbakkar (Lid og Lid 2005).Biota
- Tegund (Species)
- Hagabrúða (Valeriana sambucifolia)