Distribution
Mjög sjaldgæf tegund (Hörður Kristinsson 1998).Habitat
Sjávarfitjar og leirur.Description
Lágvaxin planta (3–15 sm) með snubbótt blöð, langa blómleggi og hvít til ljósrauð blóm.
BlaðEin- eða tvíær með granna, ljósa rót. Blöð gagnstæð. Hárlaus eða lítið eitt kirtilhærð efst. Blöð snubbótt. Stutt stoðblað undir blómunum (Lid og Lid 2005).
BlómBlómleggir langir. Krónublöð hvít eða ljósrauð. Oftast fimm fræflar (Lid og Lid 2005).
AldinFræhylki um 5 mm langt, lítið eitt lengra en bikarinn. Fræ oftst 0,8–1,5 mm breið, brún, oftast án en stundum með áberandi, breiðan himnukant (Lid og Lid 2005).
GreiningLíkist nokkuð skurfu en flæðaskurfa er smávaxnari og hefur þrjá stíla á frævunni.
Shortlist
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | LC |
Forsendur flokkunar
Flæðaskurfa flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2. Þekktir eru þrír fundarstaðir flæðaskurfu og fannst tegundin þar á fimmta áratug síðustu aldar. Nýleg þekking á stöðu stofnsins er lítil og vettvangsrannsóknir knýjandi.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Flæðaskurfa er á válista í hættuflokki EN (í hættu).
Válisti 1996: Flæðaskurfa er á válista í hættuflokki EN (í hættu).
Protection
Flæðaskurfa er friðuð samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Sjávarfitjar og leirur.Biota
- Tegund (Species)
- Flæðaskurfa (Spergularia salina)