Málþing til heiðurs Herði Kristinssyni
Hörður Kristinsson, grasafræðingur, verður sjötugur þann 29. nóvember n.k. Til að heiðra Hörð og grasafræðirannsóknir hans í um hálfa öld býður Náttúrufræðistofnun Íslands til málþings um íslenska grasafræði á Hótel KEA á Akureyri þann 23. nóvember kl. 14:00. Málþingið er öllum opið og að því loknu verður gestum boðið til móttöku.
Dagskrá
14:00 Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands setur málþingið
14:05 Eyþór Einarsson, grasafræðingur: Ágrip af sögu íslenskra grasafræðirannsókna
14:30 Gróa Valgerður Ingimundardóttir, grasafræðingur: Komplexar íslenskra háplantna
14:50 Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppafræðingur: Funga Íslands fyrr og nú
15:10 Starri Heiðmarsson, fléttufræðingur: Íslenskar fléttur afhjúpaðar
15:30 Hlé, kaffiveitingar
15:50 Elín Gunnlaugsdóttir, grasafræðingur: Íslensk strandgróðursamfélög
16:10 Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor HÍ: Um uppruna og tegundaauðgi íslensku flórunnar
16:30 Eva G. Þorvaldsdóttir, grasafræðingur og forstöðumaður Grasagarðsins í Reykjavík:
Varðveisla sjaldgæfra íslenskra tegunda í Grasagarði Reykjavíkur
16:50 Bjarni E. Guðleifsson, prófessor LBHÍ: Hörður í aldanna rás