Takið þátt í könnun
28.11.2013
Hafin er vinna við nýjan vef fyrir Náttúrufræðistofnun Íslands. Liður í því er að kanna ánægju með núverandi vef.
Við hvetjum notendur vefsins til að taka þátt í stuttri og einfaldri könnun um vef Náttúrufræðistofnunar Íslands, sem nú er opin á forsíðunni.
Með því að taka þátt eiga notendur kost á að hafa áhrif á þróun vefsins og aðstoða við að gera hann betri.
