Jökulfirðir (Sandeyri–Ritur)
FG-V 12
Hnit – Coordinates: N66,23589, V22,58296
Sveitarfélag – Municipality: Ísafjarðarbær
IBA-viðmið – Category: A4i, B1i
Stærð svæðis – Area: um 7.500 ha
Þetta svæði nær yfir fjöru og grunnsævi frá Sandeyri á Snæfjallaströnd út að Rit. Innst og yst eru sæbrött fjöll og skaga klettar víða í sjó fram en í miðhlutanum er ströndin meira aflíðandi en þó víðast hvar mjög þröng undir bröttum hlíðum. Á þessu svæði eru alþjóðlega mikilvægar vetrarstöðvar straumandar (613 fuglar).
Jökulfirðir eru að hluta innan Hornstrandafriðlands og hinn hlutinn er á náttúruminjaskrá ásamt hinum gömlu Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum utan friðlandsins.
Helstu fuglategundir í Jökulfjörðum – Key bird species in Jökulfirðir*
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Straumönd | Histrionicus histrionicus | Vetur–Winter | 613 | 2003 | 4,4 | A4i, B1i |
*Byggt á Náttúrufræðistofa Vestfjarða, óbirt gögn. – From Westfjords Natural History Institute, unpublished data. |
English summary
Jökulfirðir rocky coast and shallow marine waters, NW-Iceland, are an internationally important wintering area for Histrionicus histrionicus (613 birds).