Göltur og Öskubakur

SF-V 24

Hnit – Coordinates: N66,14900, V23,59600
Sveitarfélag – Municipality: Ísafjarðarbær, Bolungarvík
IBA-viðmið – Category: A4iii
Stærð – Area: 929 ha (með verndarjaðri – with buffer zone)

Göltur, 445 m y.s., og Öskubakur, 517 m y.s., eru brattar og skriðurunnar fjallshlíðar sín hvorum megin við Keflavík hjá Galtarvita, sem liggur milli Súgandafjarðar og Skálavíkur. Þessar alþjóðlega mikilvægu sjófuglabyggðir (≥10.000 pör) eru hafðar hér saman, enda skilur aðeins þröngt dalsmynni, rúmlega 1 km breitt, á milli þeirra. Þarna verpa 12.680 pör af fýl og hvítmáfur, 31 par.

Helstu varpfuglar í Gelti og Öskubaki – Key bird species breeding in Göltur and Öskubakur

Tegund
Species
Latneskt heiti
Scientific name
Árstími
Season
Fjöldi (pör)
Number (pairs)
Ár
Year
% af íslenskum stofni
% of Icelandic popul.
Alþjóðlegt mikilvægi
International importance
Fýll1 Fulmarus glacialis Varp–Breeding 12.680 2014 1,1  
Hvítmáfur2 Larus hyperboreus Varp–Breeding 31 2009 1,3  
Alls–Total     12.711     A4iii
¹Arnþór Garðarsson, Kristján Lilliendahl og Guðmundur A. Guðmundsson 2019. Fýlabyggðir á Íslandi 2013–2015. Bliki 33: 1–14. 
²Ævar Petersen, Sverrir Thorstensen og Böðvar Þórisson 2014. Útbreiðsla og breytingar á fjölda hvítmáfa á Íslandi. Náttúrufræðingurinn 84: 153–163.

English summary

Göltur and the nearby Öskubakur coastal mountains in Vestfirðir peninsula, NW-Iceland, are internationally important seabird colonies (≥10,000 pairs) with Fulmarus glacialis (12,680 pairs).

Opna í kortasjá – Open in map viewer