Dýjavist
L8.1 Dýjavist
Eunis-flokkun: D2.2C12 Philonotis-Saxifraga stellaris springs.
Lýsing
Vel grónir votlendisblettir þar sem vatn sprettur fram í grýttum eða malarríkum hlíðum til fjalla og við brekkurætur, einkennist af samfelldum mosabreiðum með strjálingi af æðplöntum, gróður er lágvaxinn. Mynda oft áberandi, gulgræna gróðurfláka til fjalla. Yfirborð er hallandi og lítilsháttar mishæðótt, jarðvegur er vatnsósa og grunnvatnsstreymi fremur jafnt árið um kring. Mosabreiður dýja eru mjög þéttar, þekja æðplantna er lítil og fléttur finnast vart.
Plöntur
Vistgerðin er miðlungi rík af æðplöntutegundum, fremur rík af mosum en fléttuflóra fremur rýr. Algengustu tegundir æðplantna eru klófífa (Eriophorum angustifolium), mýrelfting (Equisetum palustre), grasvíðir (Salix herbacea), lækjafræhyrna (Cerastium cerastoides), stjörnusteinbrjótur (Saxifraga stellaris) og lindadúnurt (Epilobium alsinifolium). Einkennistegundir dýjavistar eru mosarnir lindaskart (Pohlia wahlenbergii) og dýjahnappur (Philonotis fontana). Mosarnir vætukrýli (Cephalozia bicuspidata), fjallhaddur (Polytrichastrum alpinum) og lindaleppur (Scapania paludosa) eru meðal algengra tegunda í dýjum. Af fléttum finnast helst kryppukrókar (Cladonia macroceras) og hreindýrakrókar (C. arbuscula) á þurrari blettum við dýin.
Jarðvegur
Lífræn jörð er algengasta jarðvegsgerð, en einnig finnst klapparjörð. Jarðvegur er fremur grunnur og grýttur, kolefni í meðallagi en sýrustig frekar lágt.
Fuglar
Mjög fábreytt fuglalíf, en helst fæðuöflunarsvæði fyrir spörfugla og vaðfugla.
Líkar vistgerðir
Engar.
Útbreiðsla
Dýjavist finnst í öllum landshlutum og mest til fjalla. Algengust er hún á snjóþungum, blágrýtissvæðum á Austurlandi, Mið-Norðurlandi og Vestfjörðum, í 300–800 m h.y.s. Dý á landinu eru mörg en mjög lítil hvert og eitt.
Verndargildi
Miðlungs.
Opna í kortasjá – Open in map viewer
Mýri er ekki bara mýri – Mismunandi flokkun votlendis útskýrð og fjallað sérstaklega um dýjavist og rimamýravist (sýnt í Landanum á RÚV 21.10.2018).