Distribution
Skógarþröstur verpur í Evrópu og Asíu, langleiðina til Kyrrahafs. Hann er algengur hér og útbreiddur á láglendi um land allt. Íslenskir skógarþrestir teljast sérstök deilitegund (Turdus iliacus coburni) og eru þeir að langmestu leyti farfuglar. Veturseta fer þó vaxandi og sjást nú þúsundir fugla í árlegum vetrarfuglatalningum Náttúrufræðistofnunar, einkum í þéttbýli suðvestanlands.
Population
Skógarþrastastofnin er talinn um 165.000 pör (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2017) og er það í samræmi við eldri ágiskun upp á 100.000−200.000 pör (Asbirk o.fl. 1997).
Dreifing og þéttleiki eftir vistlendum: Skógarþröstur er láglendisfugl (sjá kort) og verpur þéttast í skógvistum, 46,4 pör/km², lúpínu, 21 par/km², og ræktarlandi, 9,1 par/km² (Kristinn Haukur Skarphéðinsson o.fl. 2017). Reiknaður stofn er 165.000 pör og eru aðeins 0,4% hans talinn vera ofan 300 m hæðarlínu. Skógvistlendi er að vonum mikilvægast fyrir þessa tegund, en þar eru 82.200 pör, 50% stofnsins. Um 24% skógarþrasta reiknast innan mikilvægra fuglasvæða (sjá töflu).
Shortlist
LC (ekki í hættu)
Ísland | Evrópuválisti | Heimsválisti |
---|---|---|
LC | LC | LC |
Forsendur flokkunar
Kynslóðalengd (IUCN): 5,2 ár Tímabil sem mat miðast við (3 kynslóðir):
Skógarþröstur er mjög algengur og verpur víða en stofnþróun er óþekkt. Kerfisbundnar mælingar á þéttleika mófugla hér á landi eru skammt á veg komnar (hófust árið 2006) og ná þar að auki illa utan um kjörlendi skógarþrasta. Ekki eru vísbendingar um að þeim hafi fækkað undanfarið og varpkjörlendi vex óðum með aukinni ræktun trjáa. Skógarþröstur er því flokkaður sem tegund sem ekki er í hættu (LC).
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2000: Skógarþröstur var ekki í hættu (LC).
Global position
Skógarþresti hefur fækkað töluvert í Evrópu og er nú bæði á heims- og Evrópuválista (NT; BirdLife International 2015).
Protection
Skógarþröstur er friðaður samkvæmt lögum nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Priority Site
Engin mikilvæg svæði eru skilgreind fyrir skógarþröst á Íslandi.
B3: Species of European conservation concern (category 4) – wintering
Tables
Reiknaður fjöldi skógarþrasta sem gæti orpið á þeim mikilvægu fuglasvæðum þar sem >1% íslenska stofnsins er að finna – Calculated number of breeding Turdus iliacus within important bird areas with >1% of the Icelandic population.*
Svæði Area | Svæðisnúmer Area code | Árstími Season | Fjöldi (pör) Number (pairs) | Ár Year | % af íslenskum stofni % of Icelandic popul. | Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Borgarfjörður–Löngufjörur | FG-V_10 | B | 3.291 | 2013 | 2,0 | |
Melrakkaslétta | FG-N_4 | B | 2.437 | 2013 | 1,5 | |
Úthérað | VOT-A_3 | B | 1.771 | 2013 | 1,1 | |
Suðurlandsundirlendi | VOT-S_3 | B | 26.615 | 2013 | 16,1 | |
Önnur mikilvæg svæði Other important areas | B | 6.225 | 2013 | 3,8 | ||
Alls–Total | 40.339 | 24,4 | ||||
*byggt á Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn/unpubl. data |
Images
References
Asbirk S., L. Berg, G. Hardeng, P. Koskimies og Æ. Petersen 1997. Population sizes and trends of birds in the Nordic countries 1978–1994. TemaNord 614. Kaupmannahöfn: Nordic Council of Ministers.
Birdlife International 2015. European red list of birds. Luxembourg: Official publication of the European communities. http://datazone.birdlife.org/userfiles/file/Species/erlob/EuropeanRedListOfBirds_June2015.pdf [skoðað 20.10.2016].
Kristinn Haukur Skarphéðinsson, Borgný Katrínardóttir, Guðmundur A. Guðmundsson og Svenja N.V. Auhage 2016. Mikilvæg fuglasvæði á Íslandi. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar Nr. 55. 295 s. rafræn útgáfa leiðrétt í nóvember 2017. http://utgafa.ni.is/fjolrit/Fjolrit_55.pdf.
Author
Kristinn Haukur Skarphéðinsson maí 2017, október 2018
Biota
- Tegund (Species)
- Skógarþröstur (Turdus iliacus)
English Summary
The Turdus iliacus population in Iceland is estimated 165,000 pairs, based on measured densities in different habitat types and known and probable distribution; 25% may nest in IBAs, but such areas are specifically designated for this species.
Icelandic Red list 2018: Least concern (LC) as in 2000.