Distribution
Líklega nokkuð algeng á blágrýti um landið allt.Habitat
Vex á blágrýti.Description
Hrúðurflétta með grátt, blágrátt eða grábrúnt þal, sprungið og reitskipt, ein til þrjár askhirslur í hverjum reit (Foucard 2001).
ÞaliðÞal hrúðurkennt, grátt, blágrátt eða grábrúnt, sprungið, reitskipt (0,5-1 mm breiðir, 0,3-0,6 mm þykkir), flatt eða kúpt, slétt eða ójafnt (Foucard 2001).
AskhirslaAskhirslur ein til þrjár á hverjum reit, niðurgrafnar, með þalrönd (Foucard 2001).
GreiningMjög lík gráskorpu í ytra útliti, líklega nokkuð algeng á blágrýti um landið allt, þekkist einkum frá henni á neikvæðri þalsvörun með KOH, en hefur auk þess þykkari askbeð og stærri gró.
Distribution map
Author
Starri Heiðmarsson 2007
Vex á blágrýti.Biota
- Tegund (Species)
- (Aspicilia caesiocinerea)