Distribution
Finnst víða um land (Bergþór Jóhannsson 1997).Habitat
Vex á steinum í ám og lækjum, í lækjabökkum, á malarjarðvegi við ár og læki, við lindir og dý, á rökum klettum og blautum moldarjarðvegi (Bergþór Jóhannsson 1997).Description
Breytileg tegund. Plöntur stórvaxnar, allt að 20 sm langar, grænar, gulgrænar eða gulbrúnar, jarðlægar, uppsveigðar eða uppréttar, óreglulega greinóttar eða fjaðurgreindar (Bergþór Jóhannsson 1997).
GróliðurPlöntur stórvaxnar, geta orðið 20 sm langar, grænar, gulgrænar eða gulbrúnar, jarðlægar, uppsveigðar eða uppréttar, stundum nokkuð reglulega fjaðurgreindar, stundum óreglulega greinóttar, geta verið trjálaga greinóttar eða svo til ógreindar. Greinar stuttar eða langar, þéttar eða dreifðar. Rætlingar brúnir, sléttir. Blöð upprétt, oftast 2,0-2,5 mm, egglaga, kúpt en langfellingar ekki áberandi. Blöð mjókka nokkuð snögglega fram í stuttan og breiðan odd. Rif nær upp fyrir blaðmiðju. Greinablöð svipuð stöngulblöðum en frammjórri og heldur tenntari (Bergþór Jóhannsson 1997).
KynliðurHefur ekki fundist með gróhirslum hér á landi. Plöntur eru einkynja (Bergþór Jóhannsson 1997).
FrumurFrumur í framhluta blaðs með þunnum eða nokkuð þykkum veggjum. Frumur í blaðgrunni styttri og breiðari, með lítillega holóttum veggjum. Hornfrumur stórar, ferhyrndar, tútnar, með þunnum veggjum, mynda afar vel afmörkuð horn (Bergþór Jóhannsson 1997).
Distribution map
Images
Author
Bergþór Jóhannsson 2007
Vex á steinum í ám og lækjum, í lækjabökkum, á malarjarðvegi við ár og læki, við lindir og dý, á rökum klettum og blautum moldarjarðvegi (Bergþór Jóhannsson 1997).Biota
- Tegund (Species)
- Lækjalokkur (Brachythecium rivulare)