Distribution
Finnst víða um land, síst þó á Norðausturlandi (Bergþór Jóhannsson 1998).Habitat
Vex á steinum og möl í og við ár og læki (Bergþór Jóhannsson 1998).Description
Stöngull oft jarðlægur en greinar uppréttar eða -sveigðar, beinar eða bognar. Blöð ekki sérlega þétt á stöngli og greinum (Bergþór Jóhannsson 1998).
GróliðurBreytileg tegund. Plöntur í meðallagi stórar eða frekar stórar, geta orðið yfir 10 sm, óreglulega greinóttar, grænar, gulgrænar eða brúnleitar. Stöngull oft jarðlægur en greinar uppréttar eða uppsveigðar, beinar eða bognar. Blöð ekki sérlega þétt á stöngli og greinum, upprétt, oft einhliðasveigð. Stöngulblöð oftast 1,7-2,4 mm, kúpt, egglaga eða egglensulaga, mjókka smám saman fram í snubbóttan enda. Rif nokkuð breitt, langoftast klofið, nær upp að eða upp fyrir blaðmiðju. Í stöku blöðum getur rifið verið einfalt eða stutt og tvöfalt (Bergþór Jóhannsson 1998).
KynliðurPlöntur einkynja, hefur ekki fundist hér með gróhirslum (Bergþór Jóhannsson 1998).
FrumurFrumur í framhluta blaðs með frekar þunnum veggjum, oft dálítið bognar. Frumur fremst í blaði styttri. Hornfrumur stórar, ferhyrndar, með þunnum veggjum, litlausar, mynda áberandi en illa afmörkuð horn (Bergþór Jóhannsson 1998).
Distribution map
Author
Bergþór Jóhannsson 2007
Vex á steinum og möl í og við ár og læki (Bergþór Jóhannsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Lækjalúði (Hygrohypnum ochraceum)