Distribution
Er lítið á Suðurlandi og norðan Vatnajökuls (Bergþór Jóhannsson 1999).Habitat
Vex í móum, á þúfum í mýrum, í hraunum, urðum, kjarri og skóglendi. Vex einnig í graslendi, á jarðvegsþöktum klettum og grónum melum. Vex stundum á birkistofnum (Bergþór Jóhannsson 1999).Description
Plöntur 2-6 sm, brúnleitar. Blöð frekar dreifð á stöngli, kúpt og egglaga ferhyrnd (Bergþór Jóhannsson 1999).
GróliðurPlöntur rauðbrúnar, brúnar eða grænbrúnar, sjaldan dökkgrænar, geta verið að hluta rauðar, jarðlægar, uppsveigðar eða uppréttar, óreglulega fjaðurgreindar, stundum tvífjaðraðar. Plöntur oftast 2-6 sm langar. Breidd sprota oftast 2-3 mm. Blöð frekar dreifð á stöngli, kúpt, egglaga ferhyrnd, klofin í þrjá til fimm misstóra sepa. Tveir stærstu separnir lensulaga eða þríhyrndir. Vikið milli þeirra nær niður helming blaðs eða örlítið meira og er þá átt við vel þroskuð stöngulblöð. Blaðrönd alsett þráðlaga tönnum (Bergþór Jóhannsson 1999).
KynliðurPlöntur einkynja, hafa ekki fundist með gróhirslum hér á landi. Fósturhylki stórt, langegglaga eða kylfulaga, sívalt, með þrem fellingum fremst, dregst dálítið saman fram að opinu. Sjaldan með fósturhylkjum (Bergþór Jóhannsson 1999).
FrumurFrumur í blöðum flestar sexhyrndar, sumar fimmhyrndar eða sjöhyrndar. Frumuveggir með áberandi hnúðum í frumuhornum. Frumur í fremri hluta tanna aflangar og ferhyrndar (Bergþór Jóhannsson 1999).
Distribution map
Author
Bergþór Jóhannsson 2007
Vex í móum, á þúfum í mýrum, í hraunum, urðum, kjarri og skóglendi. Vex einnig í graslendi, á jarðvegsþöktum klettum og grónum melum. Vex stundum á birkistofnum (Bergþór Jóhannsson 1999).Biota
- Tegund (Species)
- Móatrefja (Ptilidium ciliare)