Distribution
Hrafnastör er algeng um mestallt land frá láglendi upp í 700 til 800 m hæð. Hæst er hrafnastörin fundin á Merkigilsfjalli við Austurdal, Skagafirði í 900 m hæð og meðfram Laugarfellshnjúk í 750 m (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Mýrar eða mýraflög, oft grýttar, einnig uppþornaðir tjarnabotnar eða tjarnajaðrar. Einkum til fjalla (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Description
Meðalstór stör (15–35 sm) með tvö, gljáandi, dökk kvenöx og eitt karlax í toppinn. Blómgast í júní–júlí.
BlaðBlöðin rennulaga, 2–4 mm breið, rendur upporpnar (Hörður Kristinsson 1998).
BlómOftast með tvö gljáandi, dökkbrún eða brúnsvört kvenöx og eitt karlax í toppinn. Axhlífar svartar, miðtaugin samlit. Hulstrin oftast dökkbrún eða svört, sjaldnar ljósmóbrún neðan til gljáandi, með trjónu (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Distribution map
Images
Author
Hörður Kristinsson 2007
Mýrar eða mýraflög, oft grýttar, einnig uppþornaðir tjarnabotnar eða tjarnajaðrar. Einkum til fjalla (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Hrafnastör (Carex saxatilis)