Distribution
Hún er einna algengust á landræna svæðinu norðan jökla á austanverðu landinu.Habitat
Hvítstörin vex einkum á bökkum og eyrum meðfram ám, í rökum flögum og deigum móum til fjalla og inni á hálendinu.Description
Fremur lágvaxin stör (10–25 sm) hvítleit, með bústin öx, stráin leggjast niður við aldinþroskun.
BlaðStráin grönn og lotin eða liggja á jörðinni. Blöðin 1,5–2,5 mm, flöt eða lítið eitt kjöluð, oft með niðurbeygðum jöðrum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómVenjulega tvö til þrjú bústin öx. Axhlífar dökkbrúnar, snubbóttar, oft með grænni miðtaug. Hulstrin öfugegglaga, snubbótt í toppinn og trjónulaus, hvítgræn eða ljósblágræn, með hrjúfu yfirborði. Tvö fræni (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst rauðstör en hvítstör þekkist á ljósari hulstrum og lengri, jarðlægum stráum.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Hvítstörin vex einkum á bökkum og eyrum meðfram ám, í rökum flögum og deigum móum til fjalla og inni á hálendinu.Biota
- Tegund (Species)
- Hvítstör (Carex bicolor)