Distribution
Mjög sjaldgæf á Íslandi, aðeins fundin á Suðurlandi milli Þjórsár og Jökulsár á Breiðamerkursandi og á einum stað á Snæfellsnesi. Allir fundarstaðirnir eru neðan 200 m hæðar (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Mýrar og flóar.Description
Stórvaxin stör (30–60 sm) með langt, þétt, broddótt ax.
BlaðMyndar breiður. Neðri slíður grábrún til dökkbrún. Blöð grágræn, 1–2 mm breið. Strá grönn og sívöl neðst, köntuð ofar og svolítið ójöfn (Lid og Lid 2005).
BlómAxskipanin 2–4 sm, aflöng, gerð af fimm til tíu legglausum, öxum. Karlblóm efst í hverju axi. Axhlífar ljósbrúnar með breiðum himnukanti. Hulstur 2,5–3 mm langt, brúnt (Lid og Lid 2005).
GreiningAxskipan minnir á ígulstör og rjúpustör en er annars ólík.
Shortlist
NT (tegund í yfirvofandi hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
NT | NE |
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Safastör er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Safastör er ekki á válista.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Mýrar og flóar.Biota
- Tegund (Species)
- Safastör (Carex diandra)