Distribution
Tjarnastör er algeng um allt land frá láglendi upp í um 700 m hæð. Hæstu fundarstaðir hennar eru í Svörturústum á Hofsafrétti í 750 m hæð (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Tjarnir og tjarnavik, jaðrar stöðuvatna, heiðamýrar.Description
Mjög stórvaxin stör (30–100 sm), ljósgræn með löngum, uppréttum kvenöxum. Blómgast í júlí.
BlaðJarðstöngull er grófur, sterkur með renglum og sterkleg strá. Blöðin stórvaxin, 4–7 mm breið, blágræn, V-laga. Blaðslíður stofnblaðanna ljósgrábrúnt (Hörður Kristinsson 1998). Þar sem hún vex strjált í mýrum er hún fremur smávaxin og ljós yfirlitum og ber þá vel nafnið ljósastör. Þegar hún er í tjörnum er hún stórvöxnust og myndar þá blágrænar breiður (blástör) (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
BlómTvö til fjögur, leggjuð, upprétt, oftast græn eða gulgræn kvenöx og tvö til þrjú karlöx efst. Axhlífarnar odddregnar, lensulaga eða egglensulaga. Hulstrið ljósgrænt með upphleyptum, dekkri taugum og langri (1 mm) trjónu (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Distribution map
Images
Author
Hörður Kristinsson 2007
Tjarnir og tjarnavik, jaðrar stöðuvatna, heiðamýrar.Biota
- Tegund (Species)
- Tjarnastör (Carex rostrata)