Distribution
Ilmreyr er algengur um allt land frá láglendi upp í 700–750 m hæð og er meðal fyrstu grasa sem grænka og blómstra á vorin (Hörður Kristinsson - floraislands.is).In General
Við þurrkun kemur fram ilmur sem stafar af kúmarín-olíum í jurtinni en þær gefa henni einnig sérkennilegt bragð (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
Habitat
Þurrar graslendisbrekkur, valllendi og móar (Hörður Kristinsson 1998).Description
Fremur lágvaxið gras (20–30 sm) sem gefur frá sér sterkan ilm er það er slegið. Blómgast í maí–júní.
BlaðBlöðin flöt, 3–5 mm breið. Stráið stutt, sívalt, gárað; blaðgrunnurinn oft fjólubláleitur við slíðurmótin; útstæð hár við slíðurhimnuna (Hörður Kristinsson 1998).
BlómSmáöxin mörg saman í grönnum, 2–4 sm löngum, axleitum punti. Axagnirnar broddyddar, sú efri tvöfalt lengri en sú neðri. Fræflarnir aðeins tveir. Frænið klofið. Önnur blómögnin með langri baktýtu sem stendur út úr smáaxinu (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinið er hneta þar sem fræskurn og aldinhýði er runnið saman í eitt (Lid og Lid 2005).
Distribution map
Images
Author
Hörður Kristinsson 2007
Þurrar graslendisbrekkur, valllendi og móar (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Fjallareyr (Anthoxanthum odoratum)