Distribution
Snækobbi er sjaldgæfur og finnst aðeins til fjalla, finnst tæpast neðan 700 m (Hörður Kristinsson 1998). Aðalútbreiðslusvæði snækobbans er á landrænu loftslagssvæðum eða á hálendinu norðan Vatnajökuls og Hofsjökuls og einnig á háfjöllum við Eyjafjörð (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Grónir bakkar og geirar hátt til fjalla.Description
Lágvaxin tegund (2–6 sm) með bleikar blómkörfur en dökkfjólubláhærð reifablöð. Blómgast í júní-júlí.
BlaðStöngullinn loðinn með fjólubláyrjóttum hárum. Blöðin aflöng, lensulaga, þau neðstu niðurmjó, spaðalaga (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru í körfum sem eru um 1,5 sm í þvermál, ein á hverjum stöngulenda en stönglar oft einn til þrír á sömu rót. Körfubotninn mjókkar jafnt niður að stönglinum og er því ekki eins flatur og á hinum kobbategundunum. Jaðarblómin með hvítum tungukrónum. Hvirfilblómin gulleit (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst fjallakobba en snækobbinn þekkist best frá honum á fjólubláum hárum á reifunum í stað hvítra. Eins er körfubotninn meira trektlaga.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Grónir bakkar og geirar hátt til fjalla.Biota
- Tegund (Species)
- Snækobbi (Erigeron humilis)