Distribution
Algengur, einkum um norðanvert landið en síst austan til á Suðurlandi. Hann vex mest frá láglendi upp í 700 m hæð, hæst fundinn í 850 m hæð í botni Bleiksmýrardals þar sem hann nær lengst inn í hálendið (Hörður Kristinsson - floraislands.is).In General
Frjótími:Blómgun getur hafist um miðjan maí en oftast fara frjókorn að dreifast í síðustu viku maí og nær frjódreifing hámarki öðru hvoru megin við mánaðamótin maí / júní. Vorveðrátta hefur mikil áhrif á það hvenær frjótíminn hefst, því hlýrri apríl þeim mun fyrr blómgast birkið. Frjótíminn stendur yfir í 2 – 3 vikur, háð veðri, ef kalt er og vætutíð getur tognað úr þeim tíma sem birkifrjó eru í lofti.
Víxlbinding: Víxlbinding er algeng meðal ættkvísla ættbálksins Fagales, t.d. elri, hesli, agnbeyki, beyki, eik og kastanía. Einnig er víxlbinding algeng við græn epli (fersk).
SkaðsemiOfnæmisviðbrögð: Birkifrjókorn geta valdið sterkum ofnæmisviðbrögðum.
Habitat
Vex helst í móum og hálfdeigum mýrum (Hörður Kristinsson 1998).Description
Lágvaxinn runni (20–60 sm) með brúnleitum berki og nær kringlóttum, smáum blöðum. Blómgast í maí.
BlaðRunni með trjákenndar greinar og brúnleitan börk. Blöðin eru nær kringlótt, 6–8 mm í þvermál, tennt, hárlaus, stuttstilkuð, fjaðurstrengjótt (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin einkynja í stuttum öxum er nefnast reklar. Kvenreklarnir alsettir þrísepóttum rekilhlífum og standa þrjú blóm saman innan við hverja. Kvenblómin með eina frævu með tveim stílum. Karlblómin með tvo klofna fræfla (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinið er mjóvængjuð hneta (Hörður Kristinsson 1998).
AfbrigðiÓsjaldan myndar hann kynblendinga við birki sem hafa odd á blöðunum líkt og birki en blöðin eru minni en á birkinu og runninn er oftast meir eða minna jarðlægur en rís þó verulega hærra en fjalldrapinn (Hörður Kristinsson - floraislands.is).
GreiningÞað má greina fjalldrapa frá birki á því að hann er með mun minni og kringlóttari blöð (Hörður Kristinsson 1998).
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Vex helst í móum og hálfdeigum mýrum (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Fjalldrapi (Betula nana)