Distribution
Þetta er innflutt jurt sem hefur slæðst frá ræktun og er víða orðin alveg ílend. Hún breiðist gjarnan út meðfram lækjum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Hefur ekki fundist sunnanlands (Hörður Kristinsson 1998).Habitat
Dreifist aðallega meðfram lækjum og með vatni um mýrlendi og bakka (Hörður Kristinsson 1998).Description
Fremur hávaxin jurt (20–40 sm) með áberandi, fagurbláum blómum með gulum hring við blómginið. Blómgast í júlí.
BlaðStöngull og blöð gishærð með stuttum og aðlægum hárum. Blöðin lensulaga en frambreið (5–15 mm) (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru 7–8 mm í þvermál. Krónufliparnir snubbóttir, heiðbláir, hvítir eða gulleitir við blómginið. Fimm fræflar og eitt fræni. Aldinleggirnir lítið eitt lengri en bikarinn sem er lítill, gishærður, fimmtenntur og grunnt klofinn (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinin ferkleyf, með dökk, gljáandi deilialdin (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst gleym-mér-ei en er bæði hávaxnari og blómstærri, með styttri aldinleggi og minni hæringu.
Distribution map
Images
Author
Hörður Kristinsson 2007
Dreifist aðallega meðfram lækjum og með vatni um mýrlendi og bakka (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Engjamunablóm (Myosotis scorpioides)