Distribution
Þetta er fremur sjaldgæf jurt, vex einkum á norðanverðu Vesturlandi allt austur til Eyjafjarðar (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Það vex oft í þurrum melum og sandbrekkum eða þurrum, snöggum brekkum móti suðri (Hörður Kristinsson 1998).Description
Lágvaxin jurt (5–10 sm) með fáum blöðum og litlum dökkbláum blómum. Blómgast í júní–júlí.
BlaðEinær jurt. Stöngullinn með fáum, lensulaga eða mjóöfugegglaga blöðum.
BlómBlómin í uppvafinni hálfkvísl fyrir blómgun sem réttir síðan úr sér og líkist þá klasa. Krónan örsmá, um 2 mm í þvermál, dökkblá, hvít innst við blómginið. Bikarinn fimmtenntur, klofinn til miðs eða dýpra, með útstæðum krókhárum. Fræflar fimm. Ein fræva. Blómleggir miklu styttri en bikarinn, aðlægir að stönglinum (Hörður Kristinsson 1998).
AldinFerkleyft klofaldin (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst gleym-mér-ei. Sandmunablómið þekkist frá henni á örstuttum aldinleggjum (styttri en bikarinn) og örsmáum, dökkbláum, klukkulaga blómum. Sandmunablómið er einnig minna í vexti.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Það vex oft í þurrum melum og sandbrekkum eða þurrum, snöggum brekkum móti suðri (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Sandmunablóm (Myosotis stricta)