Distribution
Fremur sjaldgæf jurt sem vex nær eingöngu á Suðurlandi, einkum undir Eyjafjöllum og í Mýrdal (Hörður Kristinsson 1998).Habitat
Graslendi og blómlendi.Description
Meðalhá jurt (20–40 sm) með fjöðruðum blöðum, vafþráðum og fjólubláum blómklösum.
BlaðBlöðin fjöðruð, með fimm til átta blaðpörum, smáblöðin mjóegglaga, snubbótt í endann en þó broddydd, gis- og stutthærð, endasmáblöðin ummynduð í vafþræði sem vefjast utan um greinar nágrannajurta. Stönglarnir gáróttir, grannir (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru einsamhverf, í einhliða, leggstuttum, aðeins þrí- til fimmblóma klösum. Þau eru svipuð að gerð og hjá umfeðmingi og álíka stór. Bikarinn gishærður, klukkulaga með fimm hvassyddum tönnum (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist umfeðmingi en giljaflækja þekkist á legglausum eða stuttleggjuðum og miklu blómfærri klösum með ljósari blómum, smáblöðin snubbótt í endann með hárfínum broddi. Giljaflækja greinist frá baunagrasi á smærri og blárri blóm, fleiri og mjórri smáblöð.
Shortlist
VU (tegund í nokkurri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
VU | NE |
Forsendur flokkunar
Giljaflækja flokkast sem tegund í nokkurri hættu þar sem vaxtarsvæði tegundarinnar er takmarkað, u.þ.b. 10 km2.
Viðmið IUCN: D2
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu.D2. Restricted area of occupancy or number of locations with a plausible future threat that could drive the taxon to CR or EX in a very short time.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Giljaflækja er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Giljaflækja er á válista í hættuflokki LR (í nokkurri hættu).
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Graslendi og blómlendi.Biota
- Tegund (Species)
- Giljaflækja (Vicia sepium)