Distribution
Nokkuð algengur en er síður að finna inni á hálendinu (Hörður Kristinsson 1998).Habitat
Þurrar grundir, gilkinnungar og brekkur (Hörður Kristinsson 1998).Description
Fremur lágvaxin planta (10–18 sm) með tiltölulega stórum, fjólubláum blómum. Blómgast í júlí–ágúst.
BlaðStöngullinn stinnur, gáraður með upphleyptum strengjum, hárlaus, oft greindur ofan til. Blöðin egglaga til egglensulaga, oftast 2–3 sm á lengd, hárlaus, heilrend (Hörður Kristinsson 1998).
BlómKrónan er pípulaga, um 2–2,5 sm á lengd, dökkfjólublá, krónufliparnir með hárkenndum ginleppum að innanverðu. Bikarinn klofinn djúpt niður, tveir ytri fliparnir breiðir (5–7 mm), þeir innri miklu mjórri. Fjórir fræflar, ein fræva með tvíklofnu fræni (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst engjavendi og grænvendi. Maríuvöndur er auðþekktur á tveim breiðum bikarblöðum, auk þess með fjólublárri blómum og áberandi fjólublámenguðum blöðum og stönglum.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Þurrar grundir, gilkinnungar og brekkur (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Maríuvöndur (Gentianella campestris)