Distribution
Fremur sjaldgæfur slæðingur, það er þó algengara suðvestanlands en annars staðar á landinu (Hörður Kristinsson 1998).Habitat
Slæðingur í görðum og við bæi (Hörður Kristinsson 1998).Description
Meðalhá planta (15–30 sm) með smáum, bleikum blómum í blaðöxlunum. Blómgast í júlí.
BlaðStöngullinn ferstrendur, hærður. Blöðin gagnstæð, stilkuð, blaðkan egglaga til tígullaga, reglulega gróftennt, 2–5 sm á lengd, hærð báðum megin (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin standa í þyrpingum í blaðöxlum, einsamhverf. Krónan pípulaga, varaskipt, 12–18 mm á lengd, bogin ofan til, purpurarauð með hvítum hárum. Bikarinn klofinn til miðs eða dýpra í fimm, þornkennda brodda. Fræflar fjórir. Ein fræva í botni bikarsins (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldinið ferkleyft, í botni bikarsins (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist akurtvítönn og fleiri tvítönnum en þekkist frá þeim m.a. á grófari hæringu og oddhvassari blöðum.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Slæðingur í görðum og við bæi (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Garðahjálmgras (Galeopsis tetrahit)