Distribution
Innfluttur slæðingur sem vex víða við bæi í sveitum, einna algengust á vestanverðu Norðurlandi. Oft finnst hún einnig á gömlum eyðibýlum (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Ílendur slæðingur í hlaðvörpum og görðum.Description
Meðalhá planta (20–40 sm), hærð, með hvítum blómum í blaðöxlunum. Blómgast í júní.
BlaðStöngullinn allgildur, ferstrendur, hærður. Blöðin gagnstæð, hjartalaga eða egglaga, nokkuð odddregin, gróftennt, hærð, 4–8 sm löng (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru stilklaus, í þyrpingum í blaðöxlunum. Krónan einsamhverf, varaskipt, hvít, 1,5–2 sm á lengd, ginvíð. Bikarinn fimmskiptur, 7–10 mm langur með oddmjóum, gleiðglenntum flipum, grænn með dökkyrjóttum botni. Fræflar fjórir, frjóhirslur dökkar, undir hjálmi efri krónuvarar. Frævan fjórklofin við þroskun aldinsins (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Ílendur slæðingur í hlaðvörpum og görðum.Biota
- Tegund (Species)
- Ljósatvítönn (Lamium album)