Distribution
Víða um landið en síður inni á miðhálendinu (Hörður Kristinsson 1998).Habitat
Deiglendi, einkum meðfram tjarnabökkum, í uppþornuðum tjarnastæðum og annars staðar þar sem kyrrstætt vatn safnast fyrir (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Description
Jarðlæg jurt, 10–20 sm löng, með hárlausum, lensulaga blöðum og litlum, ljósfjólubláum blómum. Blómgast í júlí.
BlaðSkriðul, jarðlæg jurt með gagnstæðum, 10–20 mm löngum, lensulaga, oddmjóum, heilrendum og hárlausum blöðum (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin legglöng, í greindum, stakstæðum blómskipunum í öxlum efri laufblaða eða háblaða. Krónan 3–4 mm í þvermál, ljósfjólublá, með fjórum krónublöðum. Bikarblöðin græn, sporbaugótt eða oddbaugótt. Tveir fræflar. Ein fræva með einum stíl (Hörður Kristinsson 1998).
AldinAldin hjartalaga (Hörður Kristinsson 1998).
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Deiglendi, einkum meðfram tjarnabökkum, í uppþornuðum tjarnastæðum og annars staðar þar sem kyrrstætt vatn safnast fyrir (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Skriðdepla (Veronica scutellata)