Distribution
Nokkuð útbreidd á suðvesturlandi en fremur sjaldséð annars staðar á landinu (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Tjarnir, grunn vötn, tjarnastæði og vatnavik, oft í samfelldum breiðum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Description
Lágvaxin vatnajurt (5–10 sm) með sívöl blöð í þéttum stofnhvirfingum. Blómgast í júlí.
BlaðMyndar stundum fagurgrænar breiður (Hörður Kristinsson - floraislands.is). Blöðin eru í þéttum stofnhvirfingum, striklaga, sívöl, 5–10 sm löng og 1–2 mm breið. Myndar oft rótskeytar, bogsveigðar renglur (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru einkynja í sambýli. Karlblómin standa á löngum leggjum út úr blaðhvirfingunni, fjórdeild. Bikarblöðin græn eða rauðstrípuð, himnurend, ydd, 4–5 mm á lengd (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst álftalauk og vatnalauk. Álftalaukurinn þekkist á gróhirslunum neðst í blaðfætinum og á fjórum loftgöngum sem eru eftir endilöngum blöðunum að innan (sjást á þversniði).
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Tjarnir, grunn vötn, tjarnastæði og vatnavik, oft í samfelldum breiðum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Tjarnalaukur (Littorella uniflora)