Distribution
Hefur aðeins fundist á einum stað á landinu (Hörður Kristinsson 1998).Habitat
Deigt graslendi.Description
BlaðBlöð í stofnhvirfingu, sporbaugótt en stundum allt að kringlótt, mjókka jafnt og að blaðstilknum sem er vængjaður. Blöð 1–3 sm löng að blaðstilknum meðtöldum. Vanalega heilrend, hárlaus eða eins og þakin dufti (Wiggins og Thomas 1962).
BlómBlómin eru hvít, (Hörður Kristinsson 1998) eitt til þrjú saman í sveipum. Blómstilkurinn 5–20 sm langur, blómleggurinn 0,5–3 sm langur, uppréttur þegar plantan er komin í aldin. Stoðblöð svo gott sem sekklaga við grunninn, 3–4 mm löng. Bikarinn 3–6 mm langur, tennurnar um þriðjungur af lengdinni. Krónupípan jafnlöng eða lítið eitt lengri en bikarinn, hvít til ljósfjólublá á lit, krónufliparnir 5–8 mm á breidd, með skerðingu í endann (Wiggins og Thomas 1962).
AldinFræhylki sívalt, mjótt, um tvöföld lengd bikarsins, 7–8 mm langt með fjölda fræja (Wiggins og Thomas 1962).
Shortlist
RE (útdauð á Íslandi)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
RE | LC |
Forsendur flokkunar
Davíðslykill fannst árið 1911 við utanverðan Eyjafjörð, á sjávarbökkum á Stóru-Hámundarstöðum. Virðist tegundin hafa vaxið á nokkru svæði en nokkuð strjált. Davíðslykillinn hefur hins vegar ekki fundist síðan um 1980 og má telja öruggt að tegundin sé horfin úr flóru Íslands. Davíðslykill hefur aldrei fundist utan þessa eina fundarstaðar og ekki er vitað um hann í ræktun.
Viðmið IUCN
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Davíðslykill er á válista í hættuflokki RE (útdauð á svæði).
Válisti 1996: Davíðslykill er á válista í hættuflokki EW (útdauð í náttúrunni).
Protection
Davíðslykill er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Deigt graslendi.Biota
- Tegund (Species)
- Davíðslykill (Primula egaliksensis)