Distribution
Afar sjaldgæf jurt, aðeins fundin á nokkru svæði innan til í Eyjafirði (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Rök flög, einkum þar sem jarðvegur er grunnur yfir klöppum, deigir árbakkar (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Description
Fremur lágvaxin planta (10–20 sm) með blöðin í stofnhvirfingu og nokkur bleik blóm á enda blaðlaus stilksins. Blómgast í maí–júní.
BlaðStöngullinn blaðlaus, óloðinn. Blöðin í stofnhvirfingu, spaðalaga, 1–2 sm á lengd, dragast jafnt saman í stilk (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin standa nokkur saman í sveip efst á ógreindum stöngli. Krónupípan 7–8 mm á lengd með útbreiddum kraga og fimm bleikrauðum krónuflipum með skerðingu í endann. Bikarinn 4–5 mm á lengd, klofinn fjórðung niður, grænleitur með dökkum, fíngerðum dröfnum ofan til. Fræflar fimm, styttri en krónupípan. Ein fræva. Blómleggirnir 5–10 mm á lengd með stuttum, mjóum stoðblöðum við grunninn (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist engri annarri íslenskri tegund.
Shortlist
EN (tegund í hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
EN | LC |
Forsendur flokkunar
Maríulykill er þekktur frá nokkrum fundarstöðum við Eyjafjörð en tegundinni virðist hafa hnignað á síðustu árum.
Viðmið IUCN: B1; B2b(iv)
B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100 km2.B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til:b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun eftirfarandi;(iv) fjölda fundarstaða eða undirstofna.
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Maríulykill er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Válisti 1996: Maríulykill er á válista í hættuflokki VU (í yfirvofandi hættu).
Distribution map
Images
Author
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Rök flög, einkum þar sem jarðvegur er grunnur yfir klöppum, deigir árbakkar (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Maríulykill (Primula stricta)