Distribution
Fremur sjaldgæf (Hörður Kristinsson 1998).Habitat
Graslendi á bökkum, grösugir deiglendir móar og grónir hvammar (Hörður Kristinsson 1998).Description
Meðalhá planta (12–30 sm) með laufblöðin í krönsum og lítil, hvít, fjórdeild blóm úr blaðöxlunum. Blómgast í júlí.
BlaðBlöðin venjulega fjögur til sex í hverjum kransi, lensulaga eða breiðlensulaga, 6–14 mm á lengd, frambreið, broddydd, snarprend. Stöngullinn skarpstrendur með niðurvísandi broddum sem gera hann mjög snarpan og með þeim styður plantan sig við hávaxinn gróðurinn í kring (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin standa nokkur saman í blómskipunum úr blaðöxlum efri blaðanna. Krónan samblaða, fjórdeild, klofin langt niður, 3–4 mm í þvermál, fliparnir útréttir, krossstæðir. Bikarinn óhærður. Fræflar fjórir, ein fræva með klofnum stíl (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst hvítmöðru en laugamaðran þekkist einkum á hinum snarpa stöngli en einnig á því að blöðin eru ekki fleiri en sex í kransi (oft sjö eða átta á hvítmöðru), jurtin er auk þess stórvaxnari og brotgjarnari, vex gjarnan innan um hátt gras.
Distribution map
Images
Author
Hörður Kristinsson 2007
Graslendi á bökkum, grösugir deiglendir móar og grónir hvammar (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Laugamaðra (Galium uliginosum)