Distribution
Hún er fremur sjaldgæf og oft er mjög lítið af henni á hverjum vaxtarstað (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Vex í votlendi eða mýrum, oft sem undirgróður innan um mosa undir hávaxinni stör (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Description
Mjög smávaxin planta (3–10 sm) með þrjú til fjögur laufblöð í hverjum kransi. Blómstrar hvítum blómum í júlí.
BlaðBlöðin í fjórblaða krönsum, lensulaga, mjósporbaugótt eða öfugegglaga, frambreið og snubbótt í endann. Stöngullinn strendur (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin fá saman, 1,5–2 mm í þvermál. Krónan samblaða, klofin í þrjá flipa. Bikarinn hárlaus. Fræflar þrír, ein fræva með klofnum stíl (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningAuðþekkt frá öðrum möðrum, m.a. á þrídeildum blómum.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Vex í votlendi eða mýrum, oft sem undirgróður innan um mosa undir hávaxinni stör (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Þrenningarmaðra (Galium trifidum)