Distribution
Hún er fremur sjaldgæf og sums staðar talin í útrýmingarhættu í Evrópu, líklega er hún hvergi algengari en á Íslandi. Hún fer allvíða upp í 800 m hæð, hæst fundin uppi á Hleiðargarðsfjalli við Eyjafjörð í 1000 m. Stundum er hún einnig á láglendi í klettum eða skútum þar sem væta er. Á láglendi er hún einkum algeng á móbergssvæðinu á Suðurlandi (Hörður Kristinsson 1998).Habitat
Mýrlendi upp til heiða, á rústakollum á hálendinu, í vætu á grónum áreyrum, rökum flögum og klettum ef nægur raki er (Hörður Kristinsson 1998).Description
Lágvaxin jurt (6–12 sm) með lensulaga blöð og fá, stór, gul blóm. Blómgast í júní–júlí.
BlaðStöngullinn brúnloðinn, blöðóttur. Blöðin heilrend, lensulaga, blaðkan 1–2 sm á lengd og 2–4 mm á breidd. Stofnblöðin oft stilkuð (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru fimmdeild, venjulega aðeins eitt til tvö á hverjum stöngli, 2–3 sm í þvermál. Krónublöðin gul með rauðum dröfnum neðantil að innanverðu, fremur mjó (5–7 mm). Bikarblöðin græn, langrákótt, a.m.k. helmingi styttri en krónublöðin, niðursveigð. Tíu fræflar, ein fræva, tvíkskipt í toppinn (Hörður Kristinsson 1998).
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007
Mýrlendi upp til heiða, á rústakollum á hálendinu, í vætu á grónum áreyrum, rökum flögum og klettum ef nægur raki er (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Gullbrá (Saxifraga hirculus)