Distribution
Algengur um allt land frá láglendi upp í 1000 m hæð (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Habitat
Hann vex við lindir, læki, uppsprettur, í dýjum eða flögum og á áreyrum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Description
Lágvaxin jurt (3–15 sm) með blöðin í stofnhvirfingu og falleg, hvít blóm með gulum blettum á stöngulendum. Blómgast í júní–júlí.
BlaðStöngullinn blaðlaus, gishærður. Blöðin stofnstæð, 1,5–2,5 sm á lengd, odddregin og gróftennt framan til, ofurlítið gishærð (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru 1–1,4 sm í þvermál, með stjörnulögun. Krónublöðin oddbaugótt til lensulaga, gisstæð, hvít með tveim gulum dílum neðst að innanverðu. Bikarblöðin 3–4 mm löng, rauðleit í oddinn á neðra borði. Fræflar tíu, frjóhirslur rauðgular. Frævan klofin efst, ljósgulgræn eða dökkrauð (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst hreistursteinbrjóti sem vex aðeins hátt til fjalla, hefur mjórri blöð og blómgast venjulega ekki en myndar þyrpingu dökkmóleitra æxlikorna.
Distribution map
Images
Author
Hörður Kristinsson 2007
Hann vex við lindir, læki, uppsprettur, í dýjum eða flögum og á áreyrum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Stjörnusteinbrjótur (Saxifraga stellaris)