Distribution
Fremur algengt um allt land, frá láglendi upp fyrir 1500 m hæð (Hörður Kristinsson - floraislands.is).In General
Vetrarblóm er einnig kallað vetrarsteinbrjótur, snjóblómstur, lambablóm og lambarjómi. Te af jurtinni ku vera gott gegn nýrnasteinum og til að leiða tíðir kvenna (Ágúst H. Bjarnason 1994).
Habitat
Klettar, melar og rindar (Hörður Kristinsson 1998).Description
Jarðlæg planta með ferstrendum stönglum og hlutfallslega stórum, bleikum blómum. Blómgast í apríl–maí.
BlaðSprotarnir eru jarðlægir, 5–20 sm á lengd. Blöðin krossgagnstæð, stutt og afar þétt, því sýnast sprotarnir vera ferstrendir. Laufblöðin 3–4 mm, öfugegglaga, frambreið, íhvolf, þykk, sígræn, randhærð, með hvítri kalkholu í endann (Hörður Kristinsson 1998).
BlómBlómin eru 10–15 mm í þvermál, fimmdeild. Krónan lausblaða, rauð eða rauðfjólublá. Bikarblöðin snubbótt, 4–5 mm löng, með randhárum. Fræflar tíu. Frævan bleik, klofin í tvennt ofan til með tveim stílum (Hörður Kristinsson 1998).
GreiningLíkist helst lambagrasi en vetrarblóm þekkist á ferstrendum blaðsprotum og klofinni frævu.
Distribution map
Images
Author
Hörður Kristinsson 2007
Klettar, melar og rindar (Hörður Kristinsson 1998).Biota
- Tegund (Species)
- Vetrarblóm (Saxifraga oppositifolia)