Distribution
Aðeins fundinn á einum stað á Suðurlandi (Hörður Kristinsson 1998).Habitat
Rakir, skuggsælir klettaveggir (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Description
Örsmár (5–10 sm) og afar fíngerður burkni.
BlaðAfar fíngerður burkni, vex í þéttum breiðum. Blöðin græn, 2–3 mm löng, þunn og himnukennd með dökkum miðstreng. Blaðstilkarnir hárfínir og standa upp af láréttum jarðstöngli (Hörður Kristinsson - floraislands.is). Blöðin kvíslgreind, aðeins eitt frumulag að þykkt (Lid og Lid 2005).
BlómGróblettirnir eru á brún blaðflipanna og tveir blaðsepar sveigjast yfir þá sem hlíf (Lid og Lid 2005).
Shortlist
CR (tegund í bráðri hættu)
Ísland | Heimsválisti |
---|---|
CR | LC |
Forsendur flokkunar
Mosaburkni hefur einungis fundist á einum fundarstað á sunnanverðu landinu og hefur tegundin ekki fundist þar nýlega þrátt fyrir leit.
Viðmið IUCN: A4; B1+2ab(ii,v); C1+2a(i); D
A. Fækkun í stofni (á síðustu 10 árum eða 3 kynslóðum eftir því hvort er lengra) samkvæmt:A4. Fækkun (samkvæmt athugun, áætlun, ályktun eða grun) þar sem tímabilið inniheldur bæði fortíð og framtíð (allt að 100 árum fram í tímann) og þar sem fækkunin hefur ekki stöðvast EÐA eru ekki þekktar EÐA eru ekki afturkræfar samkvæmt;(a) beinni athugun
B1. Útbreiðsla áætluð minni en 100B2. Dvalar- eða vaxtarsvæði áætlað minna en 10 km2 og mat bendir til að:a. Útbreiðsla stofns er mjög slitrótt eða takmörkuð við aðeins einn stað.b. Stofn hefur sífellt minnkað samkvæmt athugun, ályktun eða áætlun eftirfarandi tveggja þátta;(ii) dvalar- eða vaxtarsvæðis,(v) fjölda fullþroska einstaklinga.
C. Stofn talinn minni en 250 fullþroska einstaklingar og:C1. Stofn talinn hafa minnkað samfellt um að minnsta kosti 25% á þremur árum eða einni kynslóð, hvort heldur spannar lengri tíma (allt að 100 árum fram í tímann) ogC2. Fullþroska einstaklingum hefur fækkað samfellt samkvæmt athugun, áætlun eða ályktun OG:(a) Stofngerð þannig að;(i) enginn undirstofn sé talinn stærri en 50 fullþroska einstaklingar.
D. Stofn talinn mjög lítill eða með mjög takmarkaða útbreiðslu
Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)
Viðmið IUCN um mat á válista (pdf)
Eldri válistar
Válisti 2008: Mosaburkni er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).
Válisti 1996: Mosaburkni er á válista í hættuflokki CR (í bráðri hættu).
Protection
Mosaburkni er friðaður samkvæmt auglýsingu nr. 184/1978 um friðlýsingu nokkurra plöntutegunda.
Distribution map
Author
Hörður Kristinsson 2007, Starri Heiðmarsson, Pawel Wasowicz 2018
Rakir, skuggsælir klettaveggir (Hörður Kristinsson - floraislands.is).Biota
- Tegund (Species)
- Mosaburkni (Hymenophyllum wilsonii)