Hrafnaþing: aðfluttar plöntutegundir á norðurslóðum

Kort sem sýnir útbreiðslu aðfluttra plöntutegunda a norðurslóðum.
Hrafnaþing Náttúrufræðistofnunar Íslands verður haldið miðvikudaginn, 18. desember kl. 15:15–16:00. Pawel Wasowicz grasafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands flytur erindið Plant immigration, naturalization and invasion in the Arctic - what do we know today?
Fram til þessa hefur aðeins lítið verið vitað um aðfluttar plöntutegundir í flóru norðurslóða. Í nýju verkefni sem unnið var undir stjórn Pawels Wasowicz var leitast við að lýsa aðfluttri flóru norðurslóða í heild sinni og einkennum hennar. Í erindinu verða niðurstöður verkefnisins kynntar en þær verða birtar í vísindaritinu AMBIO snemma á næsta ári.
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.
Hrafnaþing er haldið í húsakynnum Náttúrufræðistofnunar að Urriðaholtsstræti 6–8 í Garðabæ, í Krummasölum á 3. hæð. Því er jafnframt streymt á Youtube-rás stofnunarinnar.
Allir velkomnir!