Grunnafjörður

FG-V 8

Hnit – Coordinates: N64,38463, V21,92935
Sveitarfélag – Municipality: Hvalfjarðarsveit
IBA-viðmið – Category: A41, B1i, B2
Stærð svæðis – Area: um 1.470 ha

Grunnafjörður er grunnur vogur norðaustan við Akranes og einkennist af víðlendum leirum og þá einkum sandmaðksleirum. Svæðið er mikilvægur viðkomustaður fyrir fargesti og hefur alþjóðlegt mikilvægi fyrir margæs (2.927 fuglar) og rauðbrysting (3.540 fuglar). Auk þess fer mikið af sanderlu þar um og mikið er þar af tjaldi á öllum árstímum. Hátt í þúsund toppendur hafa fellt þar fjaðrir (Böðvar Þórisson o.fl. 2008, Einar Ó. Þorleifsson 2009).

Grunnafjörður var friðlýstur 1994 og samþykktur sem Ramsar-svæði 1996. Er einnig á IBA-skrá.

Helstu fuglategundir í Grunnafirði – Key bird species in Grunnafjörður

Tegund
Species
Latneskt heiti
Scientific name
Árstími
Season
Fjöldi (fuglar)
Number (birds)
Ár
Year
% af íslenskum stofni
% of Icelandic popul.
Alþjóðlegt mikilvægi
International importance
Margæs1 Branta bernicla Far–Passage 2.927 1990–2010 10,5 A4i, B1i
Rauðbrystingur2 Calidris canutus Far–Passage 3.540 2008 1,0 B1i, B2
1Guðmundur A. Guðmundsson, óbirt heimild. – Unpublished source.
2Böðvar Þórisson, Cristian Gallo og Þorleifur Eiríksson 2008. Fuglatalningar í Grunnafirði 2008. Náttúrustofa Vestfjarða, NV nr. 17-08. Bolungarvík: Náttúrustofa Vestfjarða.

English summary

Grunnafjörður mudflat/estuary, W-Iceland, is an internationally important staging site for Branta bernicla (2,927 birds) and Calidris canutus (3,540 birds).

Opna í kortasjá – Open in map viewer

 

Heimildir – References

Böðvar Þórisson, Cristian Gallo og Þorleifur Eiríksson 2008. Fuglatalningar í Grunnafirði 2008. Náttúrustofa Vestfjarða, NV nr. 17-08. Bolungarvík: Náttúrustofa Vestfjarða.

Einar Ó. Þorleifsson 2009. Alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði: Grunnafjörður og Blautós. Fuglar 6: 8.