Ferjubakkaflói–Hólmavað
VOT-V 1
Hnit – Coordinates: N64,61472, V21,70649
Sveitarfélag – Municipality: Borgarbyggð
IBA-viðmið – Category: B1i
Stærð svæðis – Area: um 1.500 ha
Þetta svæði nær yfir flæðilönd, mýrar og engjar meðfram neðanverðri Hvítá, Norðurá og Gljúfurá í Borgarfirði. Botngróður er ríkulegur í síðastnefndu ánum og eins í Hópinu sem fellur í Gljúfurá. Mikið af andfuglum fer þar um og hefur svæðið til skamms tíma a.m.k. haft alþjóðlega þýðingu fyrir álft og blesgæs en báðar þessar tegundir leita nú á haustin í æ ríkara mæli í kornakra í nágrenninu.
Svæðið er á náttúruminjaskrá og IBA-skrá.
Helstu fuglategundir á svæðinu Ferjubakkaflói–Hólmavað – Key bird species in the area Ferjubakkaflói–Hólmavað
Tegund Species |
Latneskt heiti Scientific name |
Árstími Season |
Fjöldi (fuglar) Number (birds) |
Ár Year |
% af íslenskum stofni % of Icelandic popul. |
Alþjóðlegt mikilvægi International importance |
---|---|---|---|---|---|---|
Álft1 | Cygnus cygnus | Far–Passage | 851 | 1982 | 7,7 | B1i |
Blesgæs2 | Anser albifrons flavirostris | Far–Passage | 500 | 2013 | 2,3 | B1i |
1Arnþór Garðarsson og Kristinn H. Skarphéðinsson 1984. A census of the Icelandic Whooper Swan population. Wildfowl 35: 37–47. 2Náttúrufræðistofnun Íslands, óbirt gögn. – IINH, unpublished data. |
English summary
Ferjubakkaflói–Hólmavað floodplains, W-Iceland, are an internationally important staging site for Cygnus cygnus (851 bird) and Anser albifrons flavirostris (500 birds).