Æðey
Æðey
Svæðið er tilnefnt vegna fugla. Það nær að hluta yfir tillögusvæðið Drangajökull, sem tilnefnt er vegna jarðminja.
Æðey


Æðey.
Mörk
Eyja undan Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi, ásamt 1 km verndarjaðri umhverfis.
Stærð
7,2 km2
Hlutfall lands: 12%
Hlutfall fjöru: 4%
Hlutfall sjávar: 83%
Hlutfall fersks vatns: <1%
Svæðislýsing
Æðey er stærsta eyjan í Ísafjarðardjúpi, vogskorin, grösug og víða mýrlend. Æðardúntekja er stunduð í eyjunni.
Forsendur fyrir vali
Mikið fuglalíf er í Æðey og ber eyjan nafn með rentu, því þar er líklega stærsta æðarvarp á landinu. Teista uppfyllir einnig alþjóðleg verndarviðmið.
Fuglar
Tegund | Árstími | Fjöldi (pör) | Ár | % af íslenskum stofni |
---|---|---|---|---|
Æður | Varp | 4.000 | 2004 | 1 |
Teista | Varp | 500 | 2000 | 4 |
Sjá einnig ítarlegri umfjöllun um sjófuglabyggðina Æðey.
Ógnir
Hlunnindanýting, minkur frá landi er utanaðkomandi ógn.
Aðgerðir til verndar
Ekki er ástæða til sérstakra aðgerða meðan eyjan er nýtt á þann hátt sem verið hefur.
Núverandi vernd
Engin.
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.