Goðdalur
Goðdalur
Svæðið er tilnefnt vegna vistgerða á landi og ferskvatnsvistgerða.
Goðdalur


Úr Goðdal.
Mörk
Svæðið liggur upp í hlíðar beggja vegna við Goðdalsá og afmarkast að norðan við lækjargil norðan Parts og nær suður að túnum við gamla bæjarstæðið í Goðdal.
Stærð
0,23 km2
Hlutfall lands: 95%
Hlutfall fersks vatns: 5%
Svæðislýsing
Goðdalur er fremur afskekktur og liggur inn af Bjarnarfirði í Strandasýslu. Goðdalsá rennur eftir miðjum dalnum og rísa brött fjöll upp af honum. Mýrlent er og flatlendi með aflíðandi hlíðum. Búskapur hefur ekki verið stundaður þar síðan um miðja tuttugustu öld en nokkrir sumarbústaðir eru í dalnum.
Forsendur fyrir vali
Jarðhita er að finna í hlíðum í Goðdals og seytla jarðhitalækir um grýttar hlíðarnar og jafnframt um flata upp af Goðdalsánni. Mýrahveravist einkennir jarðhitagróðurinn en þar sem er þurrara er móahveravist einkennandi vistgerð. Þar sem jarðhitinn er vex æðplöntutegundin naðurtunga, sem einungis þrífst við jarðhita hér á landi, auk þess sem laugadepla hefur fundist í heitum uppsprettum.
Vistgerðir
Vistgerð | Km2 | % af heildarflatarmáli | |
---|---|---|---|
Land | Móahveravist | <0,01 | <1 |
Land | Mýrahveravist | <0,01 | <1 |
Ferskvatn | Jarðhitalækir |
Ógnir
Dalurinn er afskekktur og ógnir fremur litlar. En líkt og á öðrum jarðhitasvæðum er gróður þeirra viðkvæmur fyrir traðki og ákveðin hætta er á raski vegna nýtingar t.d. til húshitunar og baða.
Aðgerðir til verndar
Engar sérstakra aðgerða er þörf nema tryggja viðunandi vernd vistgerða.
Núverandi vernd
Engin.
Kortasjá
Útgáfudagsetning
5. apríl 2018, uppfært 26. maí 2020.